Veðurguðirnir spiluðu stórt hlutverk í meistaramóti GKG
Þrír hringir látnir gilda hjá meistaraflokkunum og fleiri flokkum
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) hélt sitt meistaramót í síðustu viku og má segja að veðurguðirnir hafi tekið stóran þátt í mótinu, ekki á jákvæðan máta en þar sem völlurinn þótti óspilhæfur á laugardaginn var mótið blásið af og þrír hringir látnir gilda hjá nokkrum flokkum. Tveir voru efstir í meistaraflokki karla og þurftu því að fara í regnfötin á laugardaginn og há bráðabana og var það Ragnar Már Garðarsson sem vann Aron Snæ Júlíusson á fyrstu holu í bráðabananum. Kvennamegin var það Karen Lind Stefánsdóttir sem bar sigur úr býtum.
Þau sem hófu leik fyrr í vikunni gátu klárað alla fjóra keppnisdagana og hægt er að sjá úrslit í öllum flokkum hér: Lokastaða í öllum flokkum í meistaramóti GKG
Á heimasíðu GKG og Facebook-síðu klúbbsins er sömuleiðis hægt að sjá margar myndir sem teknar voru af Marínó Má Magnússyni.