Björn ráðinn íþróttastjóri Keilis
Birgir Björn Magnússon hefur verið ráðinn sem íþróttastjóri Keilis en hann hefur verið afrekskylfingur í mörg ár. Birgir hóf störf hjá klúbbnum sem afreksþjálfari í byrjun þessa árs og hefur einnig sinnt starfi íþróttastjóra síðustu mánuði. Birgir mun því fara fyrir öllu íþróttastarfi Keilis og halda áfram að móta og bæta starfið.
„Það er frábært að fá mann eins og Birgi inn í þetta starf. Hann býr yfir mikilli skipulagsfærni og hefur góða yfirsýn yfir þau verkefni sem starfinu fylgir” segir Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdarstjóri Keilis.
„Það er mikill heiður fyrir mig að fá að fara fyrir íþróttastarfi Keilis. Keilir hefur alltaf átt stað í mínu hjarta og markmiðin eru mjög skýr. Ég hlakka til verkefnisins og er handviss um að framundan séu spennandi tímar í Golfklúbbnum Keili, segir Birgir Björn á heimasíðu Keilis.