Fréttir

Sigurður Arnar og Aron Snær leiða eftir fyrsta dag
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 18. júlí 2024 kl. 17:16

Sigurður Arnar og Aron Snær leiða eftir fyrsta dag

Sigurður Arnar Garðarsson og Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðarbæjar eru efstir og jafnir eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu á Hólmsvelli í Leiru. Þeir léku báðir á sex höggum undir pari og settu jafnfram vallarmet en mótið fer fram á örlítið breyttum Hólmsvelli sem er par 71 í stað 72.

„Mér finnst þessi breyting á röðun brauta koma vel út. Karginn er líka flottur, það er ekki hægt að „bomba“ bara eitthvað út í loftið með drævernum. Ég var að leika vel og pútterinn var stundum heitur og þetta er bara góð byrjun,“ sagði Sigurður Arnar meðal annars í viðtal eftir hringinn.

Staðan.