Fréttir

Gunnlaugur Árni sigraði á alþjóðlegu unglingamóti í Portúgal
Fimmtudagur 28. mars 2024 kl. 10:54

Gunnlaugur Árni sigraði á alþjóðlegu unglingamóti í Portúgal

Gunnlaugur Árni Sveinsson í GKG lék frábært golf þegar hann sigraði á sterku unglingamóti í Portúgal 23.-26. mars. Félagi hans, Guðjón Frans Halldórsson, náði einnig náðu góðum árangri á þessu móti, GJG Juniors International.

Gunnlaugur Árni lék hringina þrjá á 8 höggum undir pari vallar (69-73-66) og vann með 11 högga mun. Guðjón Frans varð jafn í þriðja sæti á 227 höggum en hann lék hringina þrjá á (76-78-73).

Leikið var á Aroeira Pines Classic vellinum rétt við Lissabon en mótið er hluti af Global Junior mótaröðinni og er fyrir 23 ára og yngri, keppt var í nokkrum aldursflokkum hjá piltum og stúlkum.

Kylfingur.is ræddi við Gunnlaug síðasta haust sem sjá má hér.