Anna Júlía Íslandsmeistari í holukeppni
Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG, er Íslandsmeistari í holukeppni kvenna 2024. Hún sigraði Fjólu Margréti Viðarsdóttur, GS 6&5 í úrslitaleiknum. Mótið fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar 14.-16. júní.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Önnu Júlíu á ferlinum í einstaklingskeppni en hún er 24 ára og var að ljúka námi í bandarískum háskóla, þar sem hún lék golf samhliða náminu.
Eva Kristinsdóttir, GM, sigraði Þóru Sigríði Sveinsdóttur, GS, 3&2 í leiknum um þriðja sætið.
Mótið var það 36. í röðinni frá því að fyrst var keppt árið 1988. Keppt verður í karlaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni dagana 22.-24. júní á Garðavelli á Akranesi.
Verðlaunahafar frá vinstri: Eva Kristinsdóttir, GM, Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG og Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS. Mynd/[email protected]