Örninn 2026
Örninn 2026

Golfvellir

Skemmtilegur og alvöru par 3 holu völlur í Hraunborgum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 17. ágúst 2026 kl. 08:30

Skemmtilegur og alvöru par 3 holu völlur í Hraunborgum

Þeir láta mismikið yfir sér 9 holu vellirnir á Íslandi en víða fer fram metnaðarfullt starf. Einn þeirra minnstu er Golfklúbbur Hraunborga í Grímsnesi á Suðurlandi en þar er skemmtilegur og alvöru par 3 holu völlur sem kemur virkilega á óvart.

Golfklúbbur Hraunborga var stofnaður 2013 en völlurinn er í landi Sjómannadgsráðs Reykjavíkur. Ritstjóri kylfings.is lék 9 holur með hjónunum Önnu Sigríði Ásgeirsdóttur, gjaldkera klúbbsins og manni hennar, Jóni Sigurði Garðarssyni. Þau eru eins og flestir félagar klúbbsins með sumarbústað í landi Hraunborga en einnig úr nágrannabyggðum. Að sögn Önnu hefur starfsemin vaxið fiskur um hrygg síðustu árin og félagar telja nú um 250 manns. Formaður klúbbsins er Ragnheiður K. Guðmundsdóttir.

„Það hefur verið lögð meiri áhersla á að gera aðstæður og völlinn betri og það hefur gengið vel og haft góð áhrif á aukningu félaga. Þetta er gott athvarf fyrir marga byrjendur en líka fyrir lengra komna því það er áskorun að hitta inn á flatirnar sem eru ekki mjög stórar, kannski í stíl við brautirnar sem eru allar par 3,“ segir Anna. Jón maður hennar tekur undir þetta en hann sest upp á flatarvélina og slær flatirnar. Þegar ritstjóri kylfings.is lék með þeim hjónum í móti í Öndverðarnesi vaknaði Jón eldsnemma og sló flatir um klukkan fimm um morguninn áður en hann mætti á teig í Öndverðarnesi. Sjálfboðavinna er í hávegum höfð í starfsemi klúbbsins og margir leggja sitt af mörkum.

Tækjakostur bættur og nýir teigar

Þau hjón eru nánast allt sumarið í Hraunborgum en Anna keyrir þó í borgina til vinnu. Jón rekur eigið fyrirtæki og getur gert hlutina í sveitinni. Það er gott að skella sér á sláttuvélina og gleyma sér í flatarslætti. „Við höfum bætt tækjakostinn og fengum nýlega mjög góða flatarsláttuvél frá Golfklúbbi Vantssleysustrandar og erum við þakklát Húbba framkvæmda- og vallarstjóra. Við höfum líka fjárfest í slátturóbót sem við notum á brautirnar og aðeins á kargann. Við þurfum líklega að kaupa annan til að sjá um kargann,“ segir Jón.

Nýlega voru svo settir nýir teigar úr gervigrasi á allar brautir. Þeir eru mjúkir og það er auðvelt að setja tí-ið í fyrir upphafshöggið. Þetta var þokkalegasta fjárfesting en mun nýtast vel. Teigamál voru ofarlega á listanum því það er ákveðin áskorun að halda þeim góðum á velli þar sem margir byrjendur eru. „Þeir komu hingað frá fyrirtækinu sem við keyptum teigana og settu þá niður. Það er álrammi í kringum þá og þeir eru ágætlega stórir og reynsla okkar af þeim í sumar er mjög góð,“ segja þau Anna og Jón.

Mikil aukning og golfbox

Við völlinn er lítill golfskáli þar sem hægt er að fara á snyrtingu og kaupa drykki og smá veitingar. Við litla skálann er búið að byggja sólpall þar sem gaman er að setjast niður eftir eða á milli golfhringja. Þá eru geymslugámar á svæðinu fyrir tæki og tól sem notuð eru við hirðingu vallarins.

Anna og Jón segja að það hafi verið mikil aukning í leiknum hringjum á vellinum en nauðsynlegt er að skrá sig í Golfboxinu en sú breyting átti sér stað í vor. Gjaldið er 3.500 kr. sem gildir allan daginn og má leika að vild. Völlurinn er opinn öllum, ekki eingöngu fyrir félagsmenn.

Um völlinn er það að segja að hann er skemmtilegur og kemur á óvart. Brautirnar eru sumar undir hundrað metrum en þær lengstu um 150 metrar. Flatir voru góðar og nýir teigar eru frábærir. Sem sagt: alvöru golf á skemmtilegum par 3 holu velli í sveitastemmningu.

Ragnheiður formaður og Anna varaformaður. Konur við stjórnvölinn!

Jón á flatarsláttuvélinni sem keypt var frá Golfklúbbi Vatnsleysustrandarhrepps og virkar mjög vel.

Sigurður vallarstjóri fyrir miðju á sólpalllinum í góða veðrinu í Hraunborgum.