Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Áttundi hjá Rory - jafnar metið hjá Monty
Rory og Hatton með verðlaunagripina. Mynd/Getty.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 15. nóvember 2026 kl. 13:00

Áttundi hjá Rory - jafnar metið hjá Monty

Það var ótrúleg spenna á lokabrautunum í lokamótinu á Jarðarvellinum í Dúbaí en Rory Mcilroy náði hinu ótrúlega að vinna stigatitilinn á DP World Tour í áttunda sinn í dag. Hann háði harða baráttu í lokin við 26 ára Spánverja, Eugenio Chacarra sem endaði í 2. sæti í Kapphlaupinu til Dúbaí. Úrslitin voru ekki ljós fyrr en á 18. brautinni á lokadegi á lokamóti ársins.

Spánverjinn var í efsta sæti stigalistans fyrir síðasta mótið og var nálægt því að trufla markmið Rory Mcilroy en varð að láta sér lynda 2. sætið sem er samt frábært hjá þessum unga kylfingi.

Englendingurinn Tyrell Hatton sigraði á lokamótinu með frábæru golfi en hann varð í 2. sæti í mótinu í Abu Dhabi í síðustu viku sem Jon Rahm vann. Hatton og Rahm sem hafa verið á LIV mótaröðinni sem nú heyrir sögunni til en þeir félagar unnu sér þátttökurétt í úrslitakeppninni með góðri frammistöðu í risamótunum.

Lokastaðan í stigakeppninni Race to Dubai

Lokastaðan í lokamótinu