Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory: Held ég hafi ekki verið að hugsa um þetta þegar ég var strákur
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 15. nóvember 2026 kl. 18:32

Rory: Held ég hafi ekki verið að hugsa um þetta þegar ég var strákur

„Ég er eiginlega orðlaus. Ég er mjög stoltur að jafna met Montgomerys sem vann átta sinnum. Ég vissi ekki alveg hver staðan var í lokin. Það voru nokkrir möguleikar en ég gerði það sem þurfti til og er gríðarlega ánægður,“ sagði Norður-Írinn Rory Mcilroy eftir að hafa tryggt sér áttunda stigameistaratitilinn, unnið Kapphlaupið til Dúbaí, Race to Dubai 2026.

„Ef þú spyrðir mig hvort ég hafi einhvern tíma hugsað þetta sem ungur maður, að vinna þennan titil átta sinnum, þá var það ekki.“

Rory segir að stöðugleiki hans sé eitt af því sem hann geti nefnt sem ástæðu fyrir þessum árangri. „Ég er mikill Evrópumaður og ég geri ráð fyrir því að ég og Hatton verðum í liðinu næsta haust. Ég er mikill talsmaður DP World mótaraðarinnar og spila eins mikið og ég get og mun gera áfram. Eigum við ekki að reyna að vinna stigatitilinn aftur, ná jafnvel tíu,“ sagði hann brosandi í viðtalinu eftir sigurinn en kallað var til hans að vinna tíu sinnum sem hann tók undir. En Rory var svo spurður út í heilsu föður síns og beygði af þegar hann svaraði því.

„Hann þurfti að fara í stóra aðgerð á sjúkrahúsi fyrir tveimur mánuðum. Það gekk vel og hann er á batavegi. Ég hitti hann áður en ég fór í úrslitakeppnina og hann sagði mér bara að vinna stigatitilinn. Það er gaman að hafa náð því.“

Þetta er búið að vera enn eitt árið sem stjarna N-Írans hefur skinið. Hann varði titilinn á Masters og honum gekk heilt yfir vel en sigurinn í Dúbaí er punkturinn yfir i-ið hjá honum.