Ný 18. braut á Garðavelli á Akranesi
Framkvæmdir við gerð nýrrar 18. brautar hófust nýlega á Garðavelli á Akranesi. Umrædd framkvæmd er búin að vera lengi í undirbúningi hjá stjórn, vallarnefnd og starfsmönnum félagsins í samstarfi við Edwin Roald golfvallarhönnuð. Brautin verður endurgerð frá grunni og fær því splunkunýtt útlit en þó áfram par 3.
Í tilkynningu klúbbsins kemur fram að hafist var handa við að gröft og undirbúning að allsherjar yfirhalningu á allri 18. brautinni sem er par 3. Til stendur að taka brautina upp frá teigi til flatar, flytja til efni, leggja drenrör, færa til glompu, setja vökvunarbúnað ásamt því að stór tjörn verður grafin hægra megin á brautinni sem er hugsuð til að taka á móti vatni vestan megin af svæðinu frá klöppum og flatarsvæði. Auk þess mun flöt brautarinnar stækka umtalsvert og færast nær klöppinni til vesturs svo fátt eitt sé nefnt. Stefnt er að því að allri vélavinnu, mótun lands og efnisflutningi verði lokið fyrir sumarið 2027 þannig að hægt verði að hefja sáningu í teiga, braut og flöt.
Garðavöllur verður því leikinn næsta ár án 18. brautarinnar en „ný“ braut útbúin til bráðabirgða, tímabundin par 3 hola. Þar verður notast við nýju flötina á 4. braut og hún útbúin sem par 3 en 4. brautin verður leikin með gömlu flötinni. Núverandi 5. braut verður því 6. hola og svo koll af kolli og núverandi 17. braut verður því lokahola vallarins.


Flatargrasið verður notað í nýja teiga.


Íslandsmótið í höggleik var síðast haldið á Garðavelli árið 2015.



