Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Jafnar Rory magnað met Montgomery?
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 8. nóvember 2026 kl. 15:17

Jafnar Rory magnað met Montgomery?

Rory McIlroy hefur góða möguleika á að jafna magnað met Colins Montomery sem vann Harry Vardon bikarinn átta sinnum.  Spánverjinn Eugenio Chacarra er í efsta sæti stigalistans en Rory í 2. sæti, Patrick Reed er í því þriðja. Úrslitin munu ráðast á lokamótinu, DP World Tour Championship, í Dubai í næstu viku.

Rory lenti í þriðja sæti á Abu Dhabi Aldar Championship 2026. Hann er 533,93 stigum á eftir Chacarra fyrir lokamót tímabilsins á Earth-vellinum, þar sem sexfaldi risamótsmeistarinn hefur sigrað þrisvar, og með 2.000 stig í boði fyrir sigurvegarann hlakkar McIlroy til tækifærisins að komast á blað í sögubókunum við hlið Colins Montgomerie.

„Þetta var góð vika. Ég sá nokkur jákvæð merki í leiknum,“ sagði hinn 37 ára gamli kylfingur.

„Ég verð í síðasta ráshópnum á fimmtudaginn í næstu viku. Auðvitað hefði ég viljað vinna mótið í Abu Dhabi, en það voru nógu mörg jákvæð merki til að mér líði vel fyrir næstu viku.

Þarna vildi ég vera, í lokaráshópi í lokamóti ársins á DP. Þetta er nokkuð kunnugleg staða fyrir mig fyrir DP World Tour Championship og ég er spenntur. Markmiðið fyrir þessar tvær vikur var að reyna að ná Eugenio og Patrick og reyna að vinna Race to Dubai aftur. Það hefði verið frábært að vinna í þessari viku og minnka bilið enn frekar eða jafnvel ná forystunni, en mér finnst ég samt vera vel inni í myndinni með mjög góða möguleika.“

Chacarra lýsti McIlroy sigurstranglegri þrátt fyrir eigið forskot fyrir mótið í Dubai.

„Þetta er erfitt. Hann er annar besti kylfingur heims og sá besti í Evrópu, hann hefur verið að þessu lengi og hann spilar mjög vel í Abu Dhabi og Dubai,“ viðurkenndi Spánverjinn.

„Hann hefur spilað þennan völl milljón sinnum en ég aðeins einu sinni.

Hann verður í toppbaráttunni og við munum berjast í næstu viku. Líkurnar eru auðvitað hans megin og hann er sigurstranglegri, en við spilum bara golf.

Við vitum hvað ég get þegar ég spila vel. Það var margt gott í þessari viku, en ég þarf bara að skerpa á leiknum til að eiga möguleika í næstu viku.“

Jon Rahm tryggði sér öruggan sigur á Yas Links í fyrstu þátttöku sinni á mótinu og gaf sér þar með möguleika á að vinna sinn annan Race to Dubai-titil og þann fyrsta síðan 2019.

Til að eiga þennan veika möguleika á að lyfta Harry Vardon-bikarnum þyrfti Spánverjinn að vinna tvö mót í röð til að ljúka tímabilinu, auk þess sem Chacarra mætti ekki enda ofar en í áttunda sæti og McIlroy yrði að lenda í öðru sæti.

Hann sagði: „Ég hélt aldrei að ég ætti möguleika á að vinna þetta! Ég er mjög spenntur, þetta gefur mér aðeins meiri hvatningu fyrir næstu viku því ég hélt í alvöru ekki að ég ætti möguleika.

Þetta eru betri líkur en ég bjóst við, svo ég hlakka til og vonandi næ ég fjórða sigrinum (á Earth-vellinum) og lýk árinu með tveimur sigrum í röð.“

Rory byrjaði með látum í lokahringnum og drævaði m.a. inn á flöt á 350 metra langri 1. braut.