Jon Rahm sigraði í Abu Dhabi - keppir hann aftur á PGA mótaröðinni?
Spánverjinn Jon Rahm fagnaði sigri á Abu Dhabi Aldar Championship mótinu á DP mótaröðinni sem lauk í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Rahm lék hringina fjóra á 23 höggum undir pari. Í 2. og 3. sæti enduðu Tyrrell Hatton og Rory McIlroy.
Rahm lék lokahringinn á 67 höggum, fimm undir pari, og lauk mótinu á samtals 265 höggum. Hann hafði eins höggs forskot fyrir lokahringinn en um tíma í honum voru fjórir jafnir og efstir í mótinu en Spánverjinn var bestur á lokakaflanum og tryggði sér sinn ellefta sigur á DP mótaröðinni.
Hatton lék lokahringinn á 68 höggum og lauk keppni á 21 höggi undir pari. McIlroy, sem hafði gert atlögu að efsta sætinu, lék á 69 höggum og endaði á 19 höggum undir pari og í 3. sæti.
Vítahöggin reyndust McIlroy dýrkeypt
McIlroy vakti mikla athygli á fyrsta keppnisdegi þegar hann fékk tvö vítahögg fyrir að bæta legu boltans á 12. holu. Hann lauk fyrsta hringnum á 70 höggum en svaraði fyrir sig með frábærum öðrum hring á 63 höggum, níu undir pari.
Norður-Írinn náði sér vel á strik á lokahringnum og byrjaði meðal annars á fugli og erni á fyrstu tveimur holunum. Hann náði þó ekki að ógna sigri Rahms á lokasprettinum.
Sjötti sigur Rahms á Rolex Series
Sigurinn var sá sjötti hjá Rahm á mótum Rolex Series, stærstu mótum DP World Tour, og færði honum 1,53 milljónir Bandaríkjadala í verðlaunafé, jafnvirði rúmlega 190 milljóna íslenskra króna.
Francesco Laporta frá Ítalíu varð fjórði á 17 höggum undir pari en þeir Ángel Ayora, Bernd Wiesberger og David Puig deildu fimmta sætinu á 16 höggum undir pari.
Spennan magnast fyrir lokamótið í Dubai
Abu Dhabi-mótið var fyrra úrslitamótið í Race to Dubai-keppninni. Eugenio Chacarra frá Spáni heldur forystunni í heildarkeppninni en McIlroy er kominn upp í annað sætið eftir árangurinn í Abu Dhabi. Bandaríkjamaðurinn Patarick Reed er í 3. sæti. Þótt Rahm hafi lítið tekið þátt í Rolex mótum á DP mótaröðinni gæti hann með sigri í lokamótinu í Dúbaí, tryggt sér stigameistaratitilinn. Hann var spurður út í það í viðtali eftir sigurinn og hann sagði þetta koma honum á óvart en gerði lokamótið enn skemmtilegra fyrir sig.
Kappinn var síðustu árin á LIV mótaröðinni og lék þar að mestu leyti. Rahm er öruggur með eitt af efstu tíu sætunum á DP mótaröðinni og það tryggir þátttökurétt á PGA mótaröðinni 2027. Rahm er nýhættur á LIV mótaröðinni sem heyrir reyndar sögunni til en það verður áhugavert að sjá hvernig PGA tekur á því að LIV leikmaður vinni sér rétt með því að enda í topp 10 á DP mótaröðinni.
Lokamót tímabilsins, DP World Tour Championship, fer fram í Dubai dagana 12.–15. nóvember. Þar ræðst hver verður stigameistari Evrópumótaraðarinnar árið 2026. McIlroy freistar þess að vinna heildarkeppnina í áttunda sinn og jafna met Colin Montgomerie.



