Icelandair VITA Peter Salmon og Kiðjabergsvöllur best á Íslandi
Icelandair VITA Peter Salmon var valin besta golfferðaskrifstofan á Íslandi og Kiðjabergsvöllur besti golfvöllurinn árið 2026 af World Golf Awards. Stofnað var til þessara alþjóðlegu ferðaþjónustuverðlauna árið 1993 til að verðlauna framúrskarandi árangur í öllum lykilgreinum ferða- og ferðaþjónustunnar en frá árinu 2014 hafa verið veitt verðlaun til aðila í golfi.
Þetta er í þriðja sinn í röð sem Kiðjaberg hlýtur þessi verðlaun og þá hefur Icelandair VITA Peter Salmon fengið þessi verðlaun áður.
Eskimo Travel fékk verðlaun sem besti íslenski golfferðaskipuleggjandinn fyrir erlenda ferðamenn.
Besta golfhótelið var Hótel Grímsborgir.

Guðmundur Ásgeirsson, formaður Golfklúbbs Kiðjabergs, tók á móti verðlaununum við hátíðlega athöfn World Golf Awards á Madinaty Golf Club í Egyptalandi.



