Kylfingur dagsins

Afmælisgjöfin ekki skópar heldur gjafabréf að golfsetti
Björg vann 2. flokkinn í meistaramóti GA árið 2022
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 4. september 2023 kl. 13:42

Afmælisgjöfin ekki skópar heldur gjafabréf að golfsetti

Björg Ýr Guðmundsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en fluttist til Akureyrar árið 2007, dvölin átti að vara í tvö ár en fjölskyldan hefur ílengst og getur ekki hugsað sér að búa neins staðar annars staðar í dag. Björg byrjaði seint í golfi og hefði viljað byrja fyrr.

Björg Ýr er kylfingur dagsins.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Ég byrjaði í golfi vorið 2016, hafði þá sagt í einhver ár að ég ætlaði að byrja í golfi þegar ég yrði „gömul“ og svo kom að því að eiginmaðurinn gaf mér golfnámskeið í afmælisgjöf þegar ég var 44 ára. Það voru blendnar tilfinningar þennan dag og ekki hjálpaði að gjafabréfinu var pakkað inn í skókassa, ég hélt auðvitað að ég væri að fá einhverja geggjaða skó í afmælisgjöf. En í dag lít ég á þetta sem bestu afmælisgjöf sem ég hef fengið, við hjónin fórum saman á byrjendanámskeið hjá Stulla og eftir það var ekki aftur snúið, við kolféllum fyrir þessu frábæra sporti og erum búin að kynnast svo frábæru fólki og eignast góða vini á golfvellinum. Eftir að við byrjuðum í golfi erum við búin að fara víða og spila golf, erlendis og hérlendis. Það toppar fátt að vera í góðum hópi og spila golf og hafa gaman og ekki verra ef það eru nokkrar keppnir í gangi. Mér finnst mjög gaman að keppa í golfi og er dugleg að taka þátt í allskonar mótum, við hjónin erum til dæmis búin að taka þátt í 8 mótum á sl 6 vikum, þetta er auðvitað bilun en bara svo sjúklega gaman.

 

Helstu afrek í golfinu?

Akureyrameistari 3. fl. kvenna 2020 og í 2. fl. kvenna 2022. Og að hafa komið tvíburasystur minni í golfið sumarið 2020, það tók mig 3 ár.

 

Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? 

Þegar upphafshöggið mitt á 18. holu á Jaðarsvelli fór í bunkerinn á 9. holu. Þetta var á lokadeginum í meistaramótinu 2021 og fullur pallur af fólki að fylgjast með, höggið úr bönkernum tókst sem betur fer vel en þetta tók á taugarnar.

 

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með? 

Bróðir minn Eiríkur Guðmundsson, hann er mitt idol í golfinu.

 

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf? 

Nei alls ekki.

 

Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik? 

Sandgryfjuhögginn, þau hafa oft farið illa með skorið.

 

Aldur: 51

 

Klúbbur: Golfklúbbur Akureyrar

 

Forgjöf: 21,4

 

Uppáhaldsmatur: Indverskur matur og grillaður lax

 

Uppáhaldsdrykkur: Vatn og rauðvín

 

Uppáhaldskylfingur: Justin Thomas, hann er svo mikill keppnismaður og Andrea Líf Líndal systurdóttir mín, væri svo til í að hafa hennar sveiflu.

 

Þrír uppáhaldsgolfvellir: Jaðarsvöllur, Grafarholtið og La Penina í Portúgal.

 

Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 7. og 17. á Jaðarsvelli og 6. í Stykkishólmi

 

Erfiðasta golfholan: 9. holan á Jaðarsvelli 

 

Erfiðasta höggið: Annað höggið á fyrstu holunni á Jaðarsvelli, hættur alls staðar.

                            

Ég hlusta á: Tónlist er það Sting og allt sem hefur svona „feel good“ áhrif, útvarp er það Bylgjan og Rás 1.

 

Besta skor: 86. högg á Öndverðanesvelli (46 pkt)

Besti kylfingurinn: Rory McIlroy

 

Golfpokinn

Dræver: Ping GLe2

Brautartré: Ping Gle 3 tré 19° og Ping Gle hybrid 6 og 4

Járn: Ping GLE 2 S-7

Fleygjárn: Ping Glide 58°

Pútter: Ping GLE 2 Anser

Hanski: FJ

Skór: Ecco

Pútt fyrir fugli á Arctic open í sumar sem leið

Í golfferð með góðum vinum á La Penina í Portgúal

Tvíburasysturnar Björg Ýr og Rakel Ýr Guðmundsdætur

Ekki hola í höggi heldur fugl sem fagnað var með vænum sjússi úr „Birdie-pelaanum“