Þeir allra bestu gera líka slæm mistök - Írinn Lawry henti frá sér sigri
Shane Lawry var komin með aðra hönd á sigurinn í PGA móti helgarinnar þegar hann leiddi með þremur höggum þegar þrjár holur voru eftir í lokahring. Þessar lokaholur eru þekktar fyrir hátt erfiðleikastig en tveir tvöfaldir skollar í á 16. og 17. holu kostuðu hann fyrsta titilinn í sjö ár á mótaröðinni.
Írsku atvinnukylfingarnir, Shane Lawry og Rory Mcilroy hafa báðir hent frá sér sigrum á PGA mótaröðinni að undanförnu en þeir kappar hafa báðir verið áberandi í Ryder liði Evrópu. Þetta var í annað sinn sem Lawry var í lokaholli á stuttu tíma. Fyrir mánuði síðan fékk hann „sprengju“ á næst síðustu holunni sem kostaði hann sigurinn.
Kólumbíukylfingurinn Nico Echavarria stal sigrinum á Cognizant Classic mótinu á The Palm Beaches golfsvæðinu í Flórída. Hann hélt haus á meðan allt fór forgörðum hjá Íranum og tryggði sér sigur á 17 höggum undir pari. Vinningsupphæðin fyrir sigurinn nam rúmum 200 milljónum króna. Lokaholurnar reyndust Íranum mjög dýrar.


