Frábær hringur hjá Andreu - í 2. sæti fyrir lokahringinn
Andrea Bergsdóttir hefur leikið frábært golf á lokamóti LET Access mótaröðinni en það fer nú fram á Islantilla golfvellinum á Spáni. Andrea lék annan hringinn á 4 undir pari og er í 2. sæti fyrir lokahringinn. Ragnhildur Kristinsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn en Hulda Gestsdóttir ekki.
Andrea fékk fimm fugla og einn skolla á öðrum hring og lék flott golf. Hún deilir 2. sætinu með þremur öðrum.
Hulda Clara sem átti besta möguleika íslensku stúlknanna um að komast í topp 7 og sæti á LET mótaröðinni á næsta ári, komst ekki í gegnum niðurskurðinn og draumurinn hjá henni er því úti. Hún lék annan hringinn á pari og endaði því á 8 yfir pari en þó bara tveimur höggum frá niðurskurði.
Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í 44. sæti eftir hringi upp á 76 og 74, og er sex yfir pari.
Það er nokkuð ljóst að enginn Íslendinganna á möguleika á að enda í einu af sjö efstu sætunum. Þrátt fyrir það er spennandi lokadagur framundan hjá Andreu sem á möguleika á að sigra á mótinu.
Hin spænska Marina Escobar leiðir mótið á -6, tveimur höggum betri en Andrea.


