Lokamótið leggst vel í Huldu Clöru - á möguleika á fullum keppnisrétti á LET
„Spilamennskan hefur verið fín og ég er bara að njóta þess að spila og taka eitt mót í einu. Lokamótið leggst vel í mig og það er gaman að eiga möguleika á fullu korti,“ segir Hulda Clara Gestsdóttir, atvinnukylfingur en hún verður meðal 84 kvenna sem keppa á lokamóti LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu. Hulda er í 9. sæti stigalistans en 7 efstu fá fullan þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni 2027.
„Markmiðið er samt bara að spila gott golf og sjá hverju það skilar. Ég breyti engu, heldur bý ég til mitt leikskipulag og fylgi því, eins og á öllum öðrum mótum,“ segir Hulda Clara.
Hulda er á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður og keppandi á mótaröðinni. Henni hefur gengið mjög vel, verið fimm sinnum meðal tíu efstu og náði að sigra einu sinni. Spennan verður mikil því til mikils er að vinna. Hulda þarf að enda ofarlega til að eiga möguleika á að enda meðal sjö efstu og því ljóst að hún þarf að spila gott golf.
„Ég var mjög ánægð með frammistöðu mína í síðustu viku. Vippin mín voru mjög góð, ég fékk marga fugla þannig og síðasta daginn fór ég að setja niður pútt, svo ég vonast til að taka það með mér inn í þessa viku og sjá boltann fara ofan í holuna.“
Ég er mjög ánægð með fyrsta tímabilið mitt. Ef þú hefðir spurt mig í byrjun árs hvort ég yrði sátt við að vera í níunda sæti stigalistans fyrir síðasta mótið, hefði ég alltaf þegið það og verið mjög ánægð. Ég reyni að spila frjálslega í þessari viku og ef það gengur upp er það frábært, ef ekki, þá er það bara golf. Ég er mjög ánægð með hvernig árið hefur verið hingað til.“
Völlurinn er öðruvísi [en í síðustu viku], en ég held að flatirnar taki svipað við boltanum. Boltinn rúllar ekki mikið. Þetta er golf þar sem flugið skiptir máli, sem hentaði mér vel í síðustu viku, og vonandi hentar það mér vel aftur í þessari viku.
Flatirnar eru aðeins minni í þessari viku og á nokkrum holum eru lengri innáhögg. Það verður góð áskorun, og á sumum holum eru tré á miðri brautinni, svo maður þarf líka að vera heppinn. Ef ég fæ bæði heppni og spila gott golf verð ég nokkuð sátt.“
Rigningin mun gera flatirnar enn mýkri og ég býst við að þær haldi boltanum mjög vel á morgun. Flatirnar verða líklega hraðari vegna rigningarinnar. Ég er frá Íslandi svo ég er vön mjög slæmum veðurskilyrðum, það gæti unnið með mér ef svo fer, svo ég tek einn dag í einu, sé hvernig veðrið verður og sætti mig við það.“
Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru einnig í 84 kvenna hópnum. Ragnhildur er í 21. sæti og Andrea í 24. sæti. Ragnhildur á fræðilega möguleika á að ná 7. sætinu ef hún vinnur mótið en líkurnar eru samt mjög litlar því stigin þyrftu að raðast á aðra keppendur henni í hag.
Islantilla golfsvæðið er vel þekkt meðal íslenskra kylfinga og hefur verið einn vinsælasti áfangastaður þeirra í 30 ár.

Islantilla golfvöllurinn.


