Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrea missti flugið í lokahringnum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 20. nóvember 2026 kl. 18:13

Andrea missti flugið í lokahringnum

Íslensku golfkonurnar á LET Access mótaröðinni hafa lokið leik en Andrea Bergsdóttir sem var í 2. sæti fyrir lokadaginn á síðasta móti ársins á Islantilla á Spáni endaði í 10.-14. sæti eftir erfiðan lokadag sem hún lék á fjórum yfir pari. Ragnhildur Kristinsdóttir endaði í jöfn í 37. sæti. Hulda Clara Gestsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þrátt fyrir að Hulda hafi ekki fengið stig í mótinu hélt hún 9. sætinu á stigalistanum.

Andrea náði ekki að leika þetta flotta golf sem hún hafði gert fyrstu tvo dagana og fékk m.a. þrefaldan skolla á eina holu og lék lokadaginn á fjórum yfir pari,  76 höggum og á parinu í heildina. Hún endaði í 23. sæti stigalistans.

Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í 33. sæti mótsins á fimm yfir pari en hún lék síðasta hringinn á höggi undir pari. Ragga varð í 22. sæti stigalistans.

Með þessum árangri komast þær beint á lokaúrtökumótið fyrir LET mótaröðina sem verður í desember.

Lokastaðan í mótinu.

Stigalistinn.