Slök upphafshögg kostuðu sitt í lokamótinu hjá Huldu á Spáni
Hulda Clara Gestsdóttir er ánægð með árangurinn á fyrsta ári sínu sem atvinnukylfingur en hún endaði í 9. sæti stigalistans á LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu. Hún segir að ástæðan fyrir því að hún hafi ekki náð sér á strik í lokamótinu á Spáni hafi verið upphafshöggin.
„Upphafshöggin voru ekki nógu góð í vindinum á fyrsta hringnum og á svona skógarvelli er það kostnaðarsamt ef þau klikka. Ég þurfti að enda í topp 8 í lokamótinu til að ná LET kortinu (var í 9. sæti stigalistans fyrir mótið) svo ég þurfti að spila vel. Andlega leið mér samt vel og ég er mjög ánægð með tímabilið. Markmiðið var topp 7 en ég lærði mikið á árinu og þetta fer allt í reynslubankann,“ segir Hulda sem náði því að sigra á einu móti á sínu fyrsta ári og endaði meðal tíu efstu í þremur öðrum mótum.
Með árangri sínum kemst Hulda inn á seinna úrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina sem fer fram í Marokkó í desember.
„Fyrst fer ég heim, hitti vini, fjölskyldu og þjálfarann minn og tek nokkra daga í frí. Svo fer ég aftur til Spánar í kringum 5. desember og æfi í viku áður en ég fer til Marokkó. Ég stefni á að mæta degi fyrr til að ná auka æfingahring og sjá aðstæðurnar. Ég hef spilað báða vellina áður, svo ég veit nokkurn veginn við hverju ég má búast,“ segir Hulda Clara.
Þetta er annað árið í röð sem Íslendingur er nálægt því að vinna sér þátttökurétt á LET en í fyrra endaði Ragnhildur Kristinsdóttir í 8. sæti stigalistans. Hún verður meðal keppenda á seinna úrtökumótinu og þá vann Andrea Bergsdóttir sér einnig þátttökurétt þar. Sæti 8.-32. gáfu þátttökurétt í seinna mótið.



