Kylfingar hreyfa sig umfram opinber viðmið
Golfhreyfingin leggur áherslu á að golf sé ekki aðeins íþrótt heldur einnig samfélagslegur innviður sem styður við lýðheilsu, græn svæði, forvarnir og samfélagslega velferð. Ný SROI-greining Golfsambands Íslands, Finnish Society of Sport Sciences og KPMG sýnir þetta með skýrum hætti: Golf skilar 31,22 milljörðum króna í samfélagslegu virði á ári, eða um tvöföldum ávinningi á við þá 15,7 milljarða króna sem varið er til íþróttarinnar.
Golf sparar ríkinu fjóra milljarða króna í heilbrigðiskostnaði
Golfsamband Íslands hvetur því ríki og sveitarfélög til að líta á golf sem innvið í þágu lýðheilsu fremur en landrými sem þurfi að verja. Miklu fremur ætti að efla uppbygginguna og mæta þeirri eftirspurn sem skapast hefur í samfélaginu. Íslendingar vilja hreyfa sig og njóta útivistar í nærumhverfi sínu. Golf skilar ávinningi fyrir alla aldurshópa, styrkir samfélög og stuðlar að uppbyggingu grænna svæða sem nýtast öllum. Viðmiðunartölur OECD benda auk þess til þess að íbúar í þéttri byggð njóti góðs af því að hafa græn svæði í innan við korters fjarlægð. Fjárfesting í fjölnota útivistarsvæðum er nauðsynleg þegar horft er til framtíðar og getur jafnframt aukið virði svæðanna fyrir atvinnurekstur og ferðaþjónustu.
Kylfingar hreyfa sig umfram opinber viðmið
Golf er einstök íþrótt að því leyti að þátttaka kylfinga eykst með hækkandi aldri. Í dag greiða 33.600 manns félagsgjöld til 63 golfklúbba um land allt, auk þess sem fjöldi annarra leikur golf sér til gamans. Einn 18 holu golfhringur getur nægt til að uppfylla ráðlögð hreyfiviðmið vikunnar. Nýjustu tölur sýna að golf eitt og sér getur dugað til þess. Á golftímabilinu, frá maí til ágúst árið 2025, hreyfðu kylfingar 19 ára og eldri sig að meðaltali í 310 mínútur á viku við golfiðkun, sem jafngildir meira en einum golfhring á viku. Það er umfram opinber viðmið um hreyfingu fyrir fullorðna, sem eru 150–300 mínútur á viku. Kylfingar 60 ára og eldri hreyfðu sig að meðaltali í 330–350 mínútur á viku við golfiðkun. Niðurstöðurnar sýna að kylfingar á Íslandi ná ráðlögðum hreyfiviðmiðum og margir fara langt fram úr þeim. Golf sker sig einnig úr sem íþrótt þar sem þátttaka eykst með aldri.
Golf sem mikilvæg forvörn þegar þjóðin eldist
Ávinningurinn er ekki aðeins heilsufarslegur. Golf styrkir félagsleg tengsl, eykur útivist, bætir andlega líðan og hvetur til reglulegrar hreyfingar. Þegar allt er lagt saman er ljóst að golf er meira en íþrótt: Það er heilsueflandi samfélagsverkefni sem skilar ríki og sveitarfélögum verulegum sparnaði og miklum ávinningi.
Óbeinu áhrif golfsins liggja nú fyrir, en áður höfðum við kynnt bein áhrif þess. Ég hef áður sagt að þessi óbeinu áhrif séu grjóthörð viðskipti. Þar felast forvarnaráhrifin sem við viljum efla.
Golf er sérstaklega mikilvæg forvörn í ljósi þess að íslenska þjóðin er að eldast hratt: Árið 2050 verður um fjórði hver Íslendingur 67 ára eða eldri. Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar verður hreyfingarleysi eitt stærsta lýðheilsuverkefni næstu áratuga. Golf er ein fárra íþrótta sem fólk getur stundað alla ævi og hjálpar því að halda virkni langt fram á efri ár.
Golfsamband Íslands mun áfram vinna markvisst að því að efla aðgengi að golfi og byggja upp aðstöðu og innviði íþróttarinnar á Íslandi. Með sterkum innviðum, góðri aðstöðu og framsækinni stefnu getum við aukið heilsufarslegan ávinning enn frekar og tryggt að golf verði áfram ein áhrifamesta almenningsíþrótt landsins.
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands



