Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Framkvæmdir hafnar við veglega stækkun golfskála Keilis
Fimmtudagur 1. október 2026 kl. 16:23

Framkvæmdir hafnar við veglega stækkun golfskála Keilis

Keilismenn stefna að því að taka stækkun við golfskálann í notkun eftir tvö ár en fyrsta skóflustungan var tekin við hátíðlega athöfn í vikunni. Um er að ræða umfangsmikla stækkun golfskálans á Hvaleyrarvelli en núverandi bygging var tekin í notkun 1992.

Við þetta tækifæri var einnig undirritaður verksamningur vegna framkvæmdanna.

Fyrstu skóflustunguna tóku Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, Guðmundur Örn Óskarsson, formaður klúbbsins, og Sveinn Sigurbergsson.

Undirbúningur framkvæmda hefur þegar verið sýnilegur á Hvaleyrinni. Ræsisskúrinn sem áður stóð neðan við golfskálann hefur verið færður nær fyrstu braut vallarins og gert er ráð fyrir að nýta hluta af jarðveginum í að endurmóta landslagið á milli 15. og 18. holu.

Fulltrúi Loftorku skrifaði undir samninginn fyrir hönd verktakans ásamt Ólafi Þór Ágústssyni, framkvæmdastjóra Keilis, og Guðmundi Erni Óskarssyni, formanni klúbbsins.

Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, ávarpaði gesti við athöfnina og óskaði Golfklúbbnum Keili til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrr á árinu framkvæmdasamning vegna stækkunar golfskálans og var þá gert ráð fyrir að framkvæmdir gætu hafist haustið 2026. Áætlað hefur verið að verkefnið taki um tvö ár.

Núverandi golfskáli Keilis var tekinn í notkun haustið 1992 og var á sínum tíma miðað við að hann gæti þjónað um 750 félagsmönnum. Félagsmönnum hefur fjölgað gríðarlega síðan þá og eru þeir nú um 2.200. Þörfin fyrir stærra og hentugra húsnæði hefur því aukist verulega.

Með stækkuninni verður skipulagi og nýtingu hússins breytt töluvert. Golfverslun og önnur golftengd þjónusta mun færast á neðri hæð en efri hæðin verður í auknum mæli nýtt undir veitingarekstur og félagsstarf. Þá er fyrirhuguð ný geymslubygging fyrir golfsett sunnan við skálann og útisvæði við húsið verður einnig stækkað.