Fjórfaldur Íslandsmeistari komin í forystu
Fjórfaldur Íslandsmeistari kvenna, Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili tók forystuna á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli eftir annan keppnisdag. Guðrún lék á tveimur höggum undir pari, er á þremur undir og leiðir með tveimur höggum þegar mótið er hálfnað á 139 höggum.
Skagamærin Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Keili sem leiddi eftir fyrsta daginn, er önnur, á höggi undir pari, tveimur á eftir Guðrúnu. Hún lék á sjö höggum verr en í gær, þremur yfir pari, 74 höggum, og sagði hringinn hafa verið svolítið „stöngin út“.
Þriðja er Íslandsmeistarinn 2023, Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, á fjórum yfir pari, sex höggum á eftir Guðrúnu Brá.
Fjórða er Pamela Ósk Hjaltadóttir úr GKG á +5. Þær Eva Kristinsdóttir úr GKG og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR eru jafnar í 5. sæti á sex yfir pari.

Elsa Maren púttar á 18. flötinni á öðrum keppnishring.

Ragnhildur Kristinsdóttir, Íslandsmeistari 2023 er í 3. sæti.


