Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Dagbjartur bætti við forskotið og leiðir með fimm höggum
Dagbjartur setti niður mjög langt pútt fyrir fugli á 15. flöt og stígur hér létt spor eftir að boltinn datt í holu. Kylfingur.is/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 7. ágúst 2026 kl. 21:05

Dagbjartur bætti við forskotið og leiðir með fimm höggum

Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR og ríkjandi Íslandsmeistari jók forystu sína frá fyrsta degi og leiðir nú þegar Íslandsmótið á Korpúlfsstöðum er hálfnað, með fimm höggum. Hann lék aftur áfallalítið golf og kom inn á þremur undir pari á öðrum keppnisdegi, 68 höggum og ef hann heldur áfram á sömu braut er fátt sem getur komið í veg fyrir það að hann verji Íslandsmeistaratitilinn.

Dagbjartur fékk þó mikla keppni á fyrstu sex holunum en Tómas Eiríksson Hjaltested einnig úr GR, náði forystu þegar hann fékk þriðja fugl dagsins á 7. braut og þá kominn sex undir par. Þá var Dagbjartur tveimur brautum á eftir og fimm undir pari. Dagbjartur fékk svo fugl á 7. og 9. braut og tók aftur foyrstuna. Tómas tapaði hins vegar þremur höggum á næstu tíu holum og endaði á þremur undir pari og deilir 2. sæti með Kristjáni Karli Guðjónssyni úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar sem hefur ekki áður verið í toppbaráttu á Íslandsmóti.

Næstu menn eru Sigurður Bjarki Blumenstein á -2 og Halldór Jóhannsson, 15 ára Keiliskappi sem lék á besta skori dagsins, 67 höggum, 4 undir pari en hann lék á parinu á fyrsta keppnisdegi. Sannarlega efnilegur kylfingur þar á ferð.

„Þetta gekk bara vel, ekki ósvipað og í gær, fínasta golf. Aðstæður voru aðeins erfiðari og ég bara ánægður með gang mála,“ sagði Dagbjartur eftir hring dagsins.

Staðan eftir 36 holur

Tómas Eiríksson var í smá tíma í forystu á mótinu í seinni hring, hér slær hann á 12. teig.

Sigurður Bjarki Blumenstein er í 4. sæti.

Halldór Jóhannsson, 15 ára Keilispeyi átti besta hring dagsins, 67 högg og er í 5. sæti.