Dagbjartur með meistaratakta á fyrsta degi Íslandsmóts
Dagbjartur Sigurbrandssson ríkjandi Íslandsmeistari sýndi meistaratakta á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins á Korpúlfsstaðavellli í dag. Hann lék 18 holurnar á fimm höggum undir pari og leiðir með tveimur höggum.
Dagbjartur var vel á boltanum og pútterinn var heitur. Hann tapaði aðeins einu höggi þegar hann hitti ekki flötina í öðru höggi á 5. braut. Hann var þrjá undir pari eftir fjórar brautir og svo bætti hann tveimur fuglum við á 6. og 7. braut. Síðan komu níu pör í röð, fugl á 17. holu og par á lokabrautinni. Nýtt vallarmet en eins og hjá konunum er verið að leika völlinn eftir lengingu og Reykvíkingurinn setti því nýtt vallarmet á sínum heimavelli.
„Ég lék áfallalaust golf og það gekk vel. Það er gaman að byrja vel og ég er vel á boltanum og pútternum,“ sagði Íslandsmeistarinn.
Arnór Tjörvi Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur koma næstir á þremur undir pari. Flottir hringir hjá þeim báðum en Arnór hefur ekki verið áður svona ofarlega á Íslandsmóti. Tómas er öllu þekktari kylfingur og hefur látið til sín taka á GSÍ mótaröðinni og víðar.
Fjórir kylfingar koma á tveimur undir pari þannig að það má búast við spennu á öðrum keppnisdegi á Korpunni. Búist er við minni bleytu en meiri vind.

Tómas Eiríksson slær á 17. teig.

Sigurður Bj. Blumenstein með innáhögg á 15. braut.



