Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrea byrjaði best í Frakklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 8. október 2026 kl. 16:17

Andrea byrjaði best í Frakklandi

Fjórar atvinnugolfkonur okkar eru nú við leik á fimmta síðasta móti tímabilsins í Frakklandi á LETAS-mótaröðinni í Evrópu. Andrea Bergsdóttir byrjaði best og er á pari eftir fyrsta hring á Terre Blanche Ladies Open í Tourrettes.

Andrea fékk örn, tvo undir pari á 18. holunni en annars var skorkortið hennar frekar skrautlegt. Hún byrjaði illa og var fjóra yfir pari eftir fimm holur en lék restina á fjórum undir pari. Andrea er jöfn í 22. sæti á parinu.

Ragnhildur Kristinsdóttir lék fyrsta hringinn á þremur yfir pari, fékk fimm skolla og tvo fugla, 75 högg. Hún er jöfn í 47. sæti.

Hulda Gestsdóttir, sem er í 7. sæti á stigalista LETAS, lék 18 holurnar á fimm yfir pari, 77 höggum. Hún fékk sex skolla, einn tvöfaldan skolla, einn fugl og örn á 18. brautinni. Hulda er jöfn í 69. sæti eftir fyrsta daginn.

Guðrún Björgvinsdóttir, sem var með takmarkaðan þátttökurétt á LET mótaröðinni, þeirri efstu í Evrópu, er meðal keppenda en hún hefur ekki leikið keppnisgolf erlendis síðan snemm sumars. Henni gekk illa og endaði á sjö yfir pari, fékk sjö skolla og engan fugl og er jöfn í 84. sæti.

Skorið á fyrsta keppnisdegi var hátt, aðeins átján kylfingar voru undir pari.