Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Nýr golfvöllur á Djúpavogi í vinnslu - fjórar fyrstu brautirnar voru opnaðar nýlega
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 5. október 2026 kl. 16:06

Nýr golfvöllur á Djúpavogi í vinnslu - fjórar fyrstu brautirnar voru opnaðar nýlega

Áhugasamir kylfingar hafa unnið að uppbygginu nýs golfvallar í Djúpavogi. Nýlega voru fjórar brautir opnaðar og áhugasamir kylfingar hvattir til að mæta á svæðið og prófa þær. Í frétt frá Golfklúbbi Djúpavogs á Facebook er sagt frá málinu.

Bæjar- og héraðsmiðillinn Austurfrétt sagði í vor frá uppbyggingu golfvallar í Djúpavogi. Þar segir: Um hartnær 20 ára skeið frá árinu 1991 til 2010 eða svo var starfandi metnaðarfullur golfklúbbur á Djúpavogi sem setti upp og rak níu holu völl að Hamri í Hamarsfirði. Sú starfsemi leið þá undir lok en nú hafa nokkrir áhugasamir tekið upp þráðinn að nýju og vonast til að geta opnað nokkrar brautir á nýjum stað strax í sumar.

Nú í byrjun hausts voru brautir 1, 2, 8 og 9 opanaðar með tvennum teigum, gulum og rauðum. Vonast er til að opnaðar verði fleiri brautir næsta sumar.

„Það má kannski segja að þessi hugmynd sé afleiðing hækkandi aldurs. Þegar maður hættir að geta spilað fótbolta þarf maður að finna sér eitthvað annað í staðinn og við vorum nógu margir saman áhugasamir til að gera meira en ræða bara um hlutina. Þar sem ég sjálfur bý á Bragðavöllum þar sem búskapur er enginn fyrir utan ferðaþjónustu þá eru túnin hér ágæt til að hefja uppbyggingu að nýju og við hófum strax síðasta sumar að undirbúa það svæði. Hér hefur verið nokkur vakning í golfinu bæði meðal barna, unglinga og þeirra sem eldri eru þannig að tíminn er góður held ég,“ segir Óskar Ragnarsson, einn skipuleggjenda. 

Gamla svæðið ónýtt

Gamla golfvallarsvæðið að Hamri, sem töluverð vinna var sett í á sínum tíma, reyndist við skoðun vera orðið ónýtt að mestu svo finna þurfti nýtt landsvæði fyrir golfvöll. Óskar segir að margir hafi saknað gamla vallarins sem talsverð vinna var lögð í á sínum tíma.

„En hann reyndist bara of ónýtur þegar eftir allan þennan tíma þannig að við fórum að skoða aðra möguleika,“ sagði Óskar í vor en hann sagði að vinna stæði yfir í fjáröflun og þeir fyndu áhuga víða.

Ferðalangar gætu hjálpað

Rekstrargrundvöllur golfvallar að Bragðavöllum er líkast til sterkari en að Hamri þar sem á fyrrnefnda staðnum er vinsæl ferðaþjónusta þegar til staðar.

„Gamli klúbburinn átti fína golfvallarsláttuvél og ég notaði hana í upphafi til að skapa svona útlínur nýs vallar um leið og við ákváðum að gera þetta síðasta sumar. Við erum svona að gæla við að minnst 20 manns hér í kring séu nógu áhugasamir til að spila hér reglulega frá upphafi og vonandi enn fleiri en það þegar til kemur. Hugsanlega hjálpar líka að hér er rekin ferðaþjónusta og kannski hefur ferðafólk áhuga á að prófa aðstöðuna þegar þar að kemur,“ sagði Óskar við Austurfrétt.