Prófaði að spila á „way back black“-teigum eins og Bryson DeChambeau
Kylfingur dagsins hefur mestan hluta golfferils síns leikið á erlendri grundu, þó ekki sem atvinnumaður. Fyrstu golfhöggin tók hann rétt hjá Ásbyrgi og eftir að hafa náð að lækka sig niður fyrir 20 í forgjöf, virtist hann hafa lent á vegg og lítið var að frétta þar til hann flutti út til Panama vegna vinnu. Síðan þá hefur hann verið í Bandaríkjunum, fyrst í Californiu og undanfarin ár í Georgia-fylki og tók miklum framförum á COVID-tímum. Fjölskyldan kemur alltaf til Íslands á sumrin og þá er heldur betur spilað golf. Kylfingur dagsins heitir Jón H. Harðarson
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Ásbyrgi, sjálfsagt um 25 ára aldurinn.
Helstu afrek í golfinu?
Tveir titlar í meistaramóti Odds & „Rauði Jakkinn.“
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Líklega þegar tveir Tucan páfuglar i Panama „réðust” a mig, ég henti kylfunni í sandinn og þorði ekki að sækja hana aftur…. þurfti að fá starfsmann...
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Herborg Arnarsdóttir og svo Brian Krautz - Hollywood leikari.
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Kannski, þarf að vera i litríkum fötum til að spila vel og er líklega nokkuð auðþekkjanlegur oft a vellinum.
Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?
Pútterinn stríðir mér oft.
Aldur:
Ekki deginum eldri enn 30 en er fæddur ´74 svo 50 er líklega rétta talan.
Klúbbur:
Flatcreek golf & Country club, Peachtree City, GA
Forgjöf:
8.4 (fór neðst í 5.2 í miðju COVID)
Uppáhaldsmatur:
Mitt áhugamál er að grilla og long and low smoking nautakjot í USA, lamb/humar á Íslandi og fiskur á veitingastöðum.
Uppáhaldsdrykkur:
Malt og appelsín.
Uppáhaldskylfingur:
Alltaf Tiger.
Þrír uppáhaldsgolfvellir:
Trump National - Long Beach, California,
Spyglass Hill, Carmel, California,
Kiðjaberg á Íslandi.
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi:
Kiðjabergið, Oddur og Hraunið.
Erfiðasta golfholan:
Dragonfly - way back black - 720 yards par 5 - þarft að ná 265 yard á flugi til ad fá ekki víti!
Erfiðasta höggið:
Mér gengur oft illa með 40-55 metrana!
Ég hlusta á:
Dimmu, Bubba, country, Bjarna bróður minn og bara eiginlega allt.
Besta skor:
-2 eda 70 a Planterra Ridge Country club, GA í miðju COVID og datt niður i 5.2 i smá stund. Aldrei spilað undir pari fyrr né síðar.
Besti kylfingurinn:
Ég er bara GOAT og mikill Tiger fan frá upphafi.
Golfpokinn
Dræver: PING G430 med graphite Design AD UD 50 gr Stiff shaft.
Brautartré: PING 430 15 gr 5 wood - Big Bertha Callaway Fusion (2017). Bara klikkar ekki og fer líklega aldrei úr pokanum.
Járn: Taylor Made P790 med UST Recoil 780 ES Smacwrap Stiff skoftum - Customized Lukku graen (Shamrock Green).
Fleygjárn: Taylor made Hi-Lunch 54 og 58 einnig med UST Recoil.
Pútter: Evnroll EV 5.2 Mallet putter - bjargar því sem bjargað verður.
Hanski: Taylor Made eda Nike
Skór: Nike Air zoom Woods 20 (Scotty Sheffler skórnir, alveg geggjaðir).