Eitt af markmiðunum að klára golfhring með sama boltanum
Sigríður Ásthildur Andersen, lögmaður og stjórnmálamaður er einn margra landsmanna sem hafa fetað golfbrautina á eldri árum. Hún fór á golfnámskeið árið 2020 og segist enn vera að bíða eftir frekari afrekum en markmiðin eru áhugaverð. Hér kemur meira um Siggu sem er kylfingur dagsins.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Árið 2020 var ég farin að hugleiða þau tímamót sem yrðu ári seinna þegar ég yrði fimmtug og árin í kjölfarið. Það hafði oft hvarflað að mér að ég þyrfti að vera búin að ná tökum á golfi og til vara bridge áður en að starfsævinni lyki. Þegar ég svo renni inn götuna heima og sé nágrannakonu mína og vinkonu, sem ég vissi að spilaði ekki golf, hlaða golfsetti í bílinn varð ég forvitin. Hún var þá að fara í fyrsta golftímann af fimm sem hún var að fara í með 6 manna hópi. Ég beið ekki boðanna og kærði mig inn í þetta námskeið degi síðar, náði fjögurra klukkustunda kennslu þetta haust 2020 og þá var ekki aftur snúið. Ári síðar fór ég svo með æskuvinkonu minni í fimmtugsafmælisferð okkar til Spánar í golfskóla.
Helstu afrek í golfinu?
Þau hafa ekki enn litið dagsins ljós. Kannski er það þó afrek í sjálfu sér að hafa hent sér í þetta. Enginn í mínu nánasta umhverfi spilar golf eða hefur haft áhuga á því. Þegar ég var orðin vallarhæf var því ekki um annað að ræða en að henda sér ein á rástíma með ókunnugum. Það verður svo afrek þegar maðurinn minn fellst á að taka 5 kennslustundir.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Ég er frekar afslöppuð í þessu og tek örugglega ekki eftir neyðarlegum atvikum í mínu fari.
Hefurðu farið holu í höggi og þá hvar?
Nei.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Merkilegt nokk hef ég ekki spilað mikið með kollegum mínum úr stjórnmálum eða lögmennsku sem teljast trúlega „frægir“. Ragnhildur Kristinsdóttir (GR) sem ég þekki ekkert skráði sig eitt sinn á rástíma á Nesinu með okkur tveimur vinkonunum, rétt áður en hún gerðist atvinnumaður. Hún er besti kylfingur sem ég hef spilað með og trúlega sá „frægasti“, a.m.k. á íslensku golfsenunni.
Hver eru markmið sumarsins þegar golftíðin hefst aftur?
Mörg. Spila hring eftir hring með sama boltanum. Pútta aldrei oftar en þrisvar (ég set raunhæf markmið). Lækka forgjöfina. Spila velli á landsbyggðinni.
Hvað væri það fyrsta sem þú myndir leiðbeina byrjanda með?
Kaupa fimm kennslustundir hjá kennara. Vera svo ekki að bíða eftir vinunum eða makanum á æfingasvæðið og síðar á völlinn. „Þú ert nóg.“
Ertu hjátrúarfull hvað varðar golf?
Nei.
Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
30-60 m spil inn á flöt.

Almennar upplýsingar
Aldur: 54 ára
Klúbbur: Golfklúbbur Reykjavíkur og Skapsveiflurnar (3 manna klúbbur).
Forgjöf: 35,6
Uppáhaldsmatur: Fiskur og nautakjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Heimalagað sódavatn, örsjaldan með Campari.
Uppáhaldskylfingur: Ég fylgist með hvernig Viktori Hovland gengur.
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Korpan, Seltjarnarnes, 9 holu völlurinn í miðbæ Winter Park Orlando.
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 1. og 17. braut í Grafarholti, 2. braut Ánni/Korpu.
Erfiðasta golfholan: Man ekki eftir neinni.
Erfiðasta höggið: 60 m vipp.
Ég hlusta á: Endalaust af hlaðvörpum, m.a. um golf! (Seinni níu.)
Besta skor: 104
Besti kylfingurinn: Allir eldri borgararnir sem ég hef spilað með á Korpu á morgnana. Allir með tölu. Ef ég næ þeim einhvern tímann verð ég sátt.

Golfpokinn
Poki: Ping, bakpoki Taylor Made.
Dræver: Ping G425
Brautartré: Ping 7
Járn: Ping 8,9
Fleygjárn: Ping S,U
Pútter: Ping Heppler
Hanski: Alls konar, oft grifflur á sumrin.
Skór: Ecco, FJ.

Sigga og vinkonur hennar - Skapsveiflurnar!

17. holan í Grafarholti er ein af uppáhaldsbrautum Sigríðar.




