Náði að slá upphafshögg í móti ofan í golfpoka annars golfara
Kylfingur dagsins er fædd og uppalin á Akureyri, n.t. í Glerárþorpinu og býr þar enn. Hún hefur verið félagi í GA í 25 ár og kann einkar vel við sig þar. Hún hefur reynt að breiða út golffagnaðarerindið og hefur gengið vel með öll tíu barnabörnin.
Kylfingur dagsins er Unnur Elva Hallsdóttir.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Ég kynntist íþróttinni í Svarfaðardal þar sem bjó um tíma.
Helstu afrek í golfinu?
Að kynna golfíþróttina fyrir öllum 10 barnabörnunum með því að setja þau á sumarnámskeið hjá GA.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Það var í sveitakeppni í Vestmannaeyjum í hádramatískum leik þegar ég sló af 17 teig og boltinn lenti ofan í golfpoka sem stóð við sjöundu flöt. Dómari þurfti að leita að boltanum sem fannst í golfpoka annars GA félaga.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Ég er mjög ómannglögg. Pass.
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Nei en flatargaffallinn er alltaf í vasanum þegar ég spila.
Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?
Púttin.
Aldur: 63 ára
Klúbbur: GA
Forgjöf: 19,2
Uppáhaldsmatur: Kjúklingasúpa
Uppáhaldsdrykkur: Rauðvín og kaffi
Uppáhaldskylfingur: Tigerinn- alltaf Tiger Woods
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Jaðarsvöllur, Vestmannaeyjar og Lakes völlurinn á Infinitium í Barcelona
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 12. braut á Jaðarsvelli, 17. braut í Vestmannaeyjum og 7. braut á Dalvík.
Erfiðasta golfholan: 9.braut á Dalvík
Erfiðasta höggið: Upp úr sandi vinstra meginn á 18.braut á Jaðarsvelli.
Ég hlusta á: Storytel
Besta skor: 80 högg á Jaðarsvelli
Besti kylfingurinn: Rory Mcilroy
Golfpokinn
Dræver: Ping g400 10,5°
Brautartré: Ping g400 5 tré
Járn: Ping g400 22°, 26° og 30°. Callaway xr 6-s
Fleygjárn: Callaway mack daddy 58°
Pútter: Cleveland
Hanski:FJ
Skór: FJ sandalar