Kylfingur dagsins

Körfuboltakappi með golfdellu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 18. september 2025 kl. 16:36

Körfuboltakappi með golfdellu

Keflvíkingurinn Albert Óskarsson er heimsmeistari í þrípúttum að eigin sögn en þessi fyrrverandi körfuboltakappi er margfaldur Íslandsmeistari með bítlabæjarliðinu í körfubolta sem fékk viðurnefnið Keflavíkurhraðlestin þegar það var nær ósigrandi í mörg ár fyrir og eftir 1990. Alli segir afrekin fá eða engin á golfvellinum. Hann er samt lunkinn kylfingur, er duglegur að spila golf með frúnni og vinum, sérstaklega í Öndverðarnesi þar sem hann er félagi -  en hann bíður eftir enn draumahögginu.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Ég byrjaði aðeins um 14 ára gamall. Æskuvinirnir voru að þvælast í þessu og ég hoppaði með. Svo tók ég 20 ára pásu, en eftir körfuboltann fór ég aftur að fikta við golfið og er enn að.

Helstu afrek í golfinu?

Það er nú lítið um það.

Hvað er neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?

Þau eru nokkur, en eitt stendur sérstaklega upp úr. Ég var að spila á Alicante Golf á Spáni með Guðjóni Skúla, Hrannari Hólm og Bjössa Bónda. Teigarnir voru frekar aftarlega, ég slæ, hitti boltann mjög illa – hann fer í gegnum golfbílinn, smellur í pissuskúrinn, upp í loft og endar fyrir aftan teiginn. Sem sagt, í mínus eftir fyrsta högg! 

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?

Eyjapeyjinn Ásgeir Sigurvinsson.

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?

Nei, ekki neitt.

Hefurðu farið holu í höggi?

Nei, en komist nokkrum sentimetrum frá því. 

Hvað þarftu helst að bæta í þínum golfleik?

Púttin, ég er mögulega heimsmeistari í þrí-púttum.

MEIRA UM ALBERT KYLFING:

  • Aldur: 57
  • Klúbbur: GKG, Öndverðarnes
  • Forgjöf: 13,1 
  • Uppáhaldsmatur: Lambahryggur með öllu tilheyrandi
  • Uppáhaldsdrykkur: Kaffi og sódavatn
  • Uppáhaldskylfingur: Falur Harðarson, vinur minn – sá sem hefur oftar en flestir farið næstum því holu í höggi 
  • Þrír uppáhaldsgolfvellir: Öndverðarnes, Vestmannaeyjar, Leiran
  • Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 16. braut á Öndverðanesi, 17. braut í Vestmannaeyjum, 1. braut á Brautarholti
  • Erfiðasta golfholan: Bergvík í Leirunni
  • Erfiðasta höggið: Upp úr bönker – nenni ekki að æfa það
  • Ég hlusta á: Litlu kallana á öxlinni sem hvísla að mér að reyna inn á af löngu færi með misgóðum árangri 
  • Besta skor: 79 högg í Leirunni
  • Besti kylfingurinn: Tiger Woods

Golfpokinn

  • Poki: Kahma.
  • Dræver: Titleist TSR2
  • Brautartré: Titleist TS2
  • Járn: Titleist T300
  • Fleygjárn: Vokey
  • Pútter: – Cobra
  • Hanski: TaylorMade
  • Skór: Ecco

Púttin hjá Alla: „Ég er mögulega heimsmeistari í þrí-púttum.“

Fyrsta brautin í Brautarholti er ein þriggja uppáhaldsholna Alberts.