Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Víking veisla fyrir snjalla kylfinga á 8. braut á Urriðavelli
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 30. júlí 2026 kl. 06:34

Víking veisla fyrir snjalla kylfinga á 8. braut á Urriðavelli

Kylfingar sem fara holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli fá flott verðlaun. Hola Mathús, veitingaaðilinn í klúbbhúsinu býður hinum heppna sem nær draumahögginu á holunni og þeim sem eru með viðkomandi í ráshópi upp á ískaldan Víking að leik loknum. Að auki fær hinn heppni tíu rútur af Víking gylltum að gjöf.

Þá fá allir sem fá fugl á 8. holunni ískaldan Víking í skála að leik loknum. Heppnir kylfingar á 8. holu eiga því von á veislu fari boltinn rétta leið!