Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Níu einpútt í röð á seinni níu holunum hjá Íranum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 14. september 2026 kl. 16:38

Níu einpútt í röð á seinni níu holunum hjá Íranum

Pútterinn hjá Shane Lowry sem sigraði á Írska meistaramótinu um síðustu helgi var sjóðheitur í mótinu öllu en aldrei þó eins og á þriðja keppnisdegi þegar kappinn setti vallarmet (62 högg) en á seinni níu holunum einpúttaði hann níu sinnum.

„Ef mér líður ekki vel núna, þá gerist það aldrei,“ sagði heimamaðurinn brosandi eftir hringinn. „Þetta voru pútt sem ég á að setja ofan í en maður verður svekktur að gera ekki, 2-3 metra löng, tvö reyndar af lengra færi. Pútterinn var heitur og hann bjargaði mér oft í hringnum, bæði þegar ég hafði farið aðeins út af sporinu en líka fuglapútt. Það var góð tilfinning að sjá boltann fara alltaf ofan í miðja holu. Venjulega er það ég sem horfi á aðra gera þetta, svo þetta var góð tilbreyting,“ sagði Írinn sem tryggði sér sigur með frábæru golfi á lokadeginum og setti líka vallarmet á 72 holum, 24 undir pari.