Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Costa Navarino er nýjung hjá Icelandair VITA: Nýr lúxusáfangastaður í Grikklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 15. september 2026 kl. 09:51

Costa Navarino er nýjung hjá Icelandair VITA: Nýr lúxusáfangastaður í Grikklandi

Icelandair VITA hefur bætt einum fremsta og margverðlaunuðum golfáfangastað Evrópu, Costa Navarino á Pelópsskaga í Grikklandi, við dagskrá sína á næsta ári. Flogið verður beinu flugi til Kalamata, en þaðan er aðeins um 50 mínútna akstur á dvalarstaðinn. „Þetta er magnaður staður með fjórum frábærum fjölbreyttum hágæða golfvöllum í frábæru útsýni og lúxus í gistingu og mat,“ segir Peter Salmon hjá VITA.

Í boði verða tvær 10 nátta ferðir:

  • 9. apríl – 19. apríl
  • 18. apríl – 28. apríl
Upplifðu fjóra 18 holu velli

Costa Navarino skartar fjórum 18 holu meistaraflokksvöllum í stórbrotnu landslagi við Jónahafið, umkringdum ólífulundum og hæðum. Farþegar leika alla fjóra vellina tvisvar sinnum (samtals 8 hringir) með golfbíl inniföldum:

  • The Dunes Course: Opið strandlandslag með fallegu klúbbhúsi og útsýni yfir hafið.
  • The Bay Course: Fjölbreyttur völlur þar sem nokkrar holur liggja alveg meðfram ströndinni.
  • The Hills Course – Olympic Academy: Stórkostlegt útsýni yfir Messiníu og hafið úr hæðunum.
  • The Hills Course – The Westin Resort: Krefjandi og skemmtilegur völlur í náttúrulegu umhverfi.

Auka 9 holur eru í boði án endurgjalds samdægurs eftir morgungolf (háð framboði) á sama velli og leikinn var um morguninn.

Vellirnir eru hannaðir af vel þekktum stórkylfingum og arkitektum. Bernhard Langer, þýski risameistarinn og einn sigursælasti kylfingur sögunnar hannaði fyrsta völlinn sem opnaði árið 2010 og heitir The Dunes. Ári síðar opnaði Bay völlurinn og hann er hannaður af einum þekktasta golfarkitekt heims Robert Trent Jones II. Hinir tveir vellirnir, The Olympic og The Hills eru hannaðir af engum öðrum en Spánverjanum Jose Maria Olazabahl. 

Kylfingur.is var á Costa Navarino fyrir nokkrum árum og getur staðfest að um er að ræða eitt flottasta og skemmtilegasta golfsvæði Evrópu og þó víðar væri leitað.

Lúxus, hálft fæði og drykkir

Innifalið í ferðunum er hálft fæði (kvöldverður í 9 nætur) með innlendu borðvíni, bjór, gosi og vatni. Gist er á The Westin Resort Costa Navarino sem er fimm stjörnu hótel. Gestir fá að prófa ólíka veitingastaði dvalarstaðarins yfir dvölina, auk þess sem gert er ráð fyrir einu fríkvöldi til að heimsækja nærliggjandi grísk þorp.

Auk golfsins býður Costa Navarino upp á heilsulindir, strendur, padel, tennis og vatnasport, sem gerir staðinn að fullkominni vin fyrir alla sem vilja sameina golf, afslöppun og lúxus.

Nánar hér.