Vestmannaeyjavöllur tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Vestmannaeyjavöllur er tilnefndur til verðlauna á 13. árlegu World Golf Awards en það er meðal virtustu viðurkenningum sem veittar eru á vettvangi golfíþróttarinnar og golfferðamennsku.
Golfklúbbur Vestmannaeyja er tilnefndur í tveimur flokkum árið 2026:
- Besti golfvöllur Evrópu 2026 (Europe’s Best Golf Course)
- Besti golfvöllur Íslands 2026 (Iceland’s Best Golf Course)
Tilnefningin er veitt af alþjóðlegu fagfólki í golfferðaþjónustu og golfáhugafólki um allan heim.
Í frétt frá GV segir að klúbburinn hafi um árabil vakið athygli fyrir einstaka staðsetningu, krefjandi og fallega hönnun golfvallar og ógleymanlega upplifun kylfinga. Vestmannaeyjavöllur hefur fengið fleiri viðurkenningar á undanförnum árum og vakið athygli.
Atkvæðagreiðsla er hafin og geta bæði almenningur og fagfólk innan golfferðaþjónustu kosið þá velli sem þeir telja standa fremst í greininni.
Kosning stendur til miðnættis 1. október 2026, en sigurvegarar verða tilkynntir í kjölfarið við hátíðlega verðlaunaafhendingu World Golf Awards.
„Við hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu og þann stuðning sem klúbburinn nýtur frá félagsmönnum, gestum, samstarfsaðilum og heimamönnum. Tilnefningin er sameiginlegur árangur allra þeirra sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera Vestmannaeyjavöll að einum af eftirminnilegustu golfvöllum heims. Við hvetjum alla golfáhugamenn til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og styðja Vestmannaeyjar á alþjóðlegum vettvangi,“ segir í frétt GV.
Hægt er að kjósa hér: https://worldgolfawards.com/news/article/239/world-golf-awards-opens-2026-voting



