Vellirnir á höfuðborgarsvæðinu opna
Vellirnir á höfuðborgarsvæðinu eru að opna einn af öðrum. Leirdalsvöllur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og Urriðavöllur opna á fimmtudaginn en Hvaleyrarvöllur opnaði í gær.
Korpan og Grafarholt opna á laugardag 23. maí. Flestir golfvellir landsins eru því að opna í vikunni en ekki er hægt að sjá upplýsingar um opnun Jaðarsvallar á Akureyri.


