Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Tiger Woods handtekinn eftir bílveltu í Flórída
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 28. mars 2026 kl. 12:10

Tiger Woods handtekinn eftir bílveltu í Flórída

Goðsögnin Tiger Woods var handtekinn síðdegis á föstudag og ákærður fyrir akstur undir áhrifum, og fyrir að neita að gefa þvagprufu. Handtakan átti sér stað eftir að Range Rover jeppi, sem Woods ók, valt nálægt heimili hans á Jupiter Island í Flórída eftir að hafa ekið á háþrýstiþvottabíl. Hvorki Woods né ökumaður meiddust í óhappinu.

Samkvæmt John Budensiek, sýslumanni í Martin-sýslu, hófst atburðarásin um klukkan 14:00 þegar tilkynnt var um slys við South Beach Road í Hobe Sound. Háþrýstiþvottabíllinn með litla kerru var að beygja inn í innkeyrslu þegar ökumaðurinn sá jeppa Woods nálgast á miklum hraða. Þrátt fyrir tilraunir vörubílstjórans til að víkja út í vegkant á þessum þrönga vegi, tók Woods fram úr á síðustu stundu með þeim afleiðingum að hann rakst á afturenda kerrunnar. Við höggið valt jeppinn á hliðina og rann töluverða vegalengd á ökumannshurðinni áður en hann stöðvaðist. Sýslumaðurinn tók fram að myndir af vettvangi segðu sína sögu; Woods hafi ekið langt yfir 48 km hámarkshraða svæðisins.

Woods tókst að skríða út um farþegahurðina og þegar lögregla kom á vettvang þótti hann sýna skýr merki þess að vera undir áhrifum. Hann var sljór og átti erfitt með viðbrögð. Eftir ítarleg próf á vettvangi var hann handtekinn og færður í fangelsið í Martin-sýslu. Þar gekkst hann undir öndunarpróf sem sýndi engin merki um áfengisneyslu, en hann neitaði alfarið að gangast undir þvagprufu. Sýslumaðurinn sagði að sérfræðingar teldu hann hafa verið undir áhrifum lyfja eða fíkniefna, en vegna neitunar hans munu endanlegar niðurstöður um áhrifavalda sennilega aldrei liggja fyrir.

Woods var haldið í fangelsinu fram yfir klukkan 23:00 en var sleppt gegn tryggingu skömmu fyrir miðnætti. Sýslumaðurinn lagði áherslu á að farið væri að lögum þrátt fyrir frægð ökumannsins, en öryggi hans hafi verið tryggt með því að halda honum fjarri almennum föngum.

Þetta er fjórða alvarlega umferðarlagatengda atvikið á ferli Woods, en hann lenti síðast í lífshættulegu slysi árið 2021. Atvikið nú vekur mikinn óhug í golfheiminum, enda hafði Woods nýlega snúið aftur til keppni í TGL-deildinni eftir bakaðgerð og margir höfðu vonast eftir því að sjá hann meðal keppenda á Masters mótinu í apríl. Sérfræðingar og vinir, þar á meðal Donald Trump, hafa lýst yfir þungum áhyggjum af velferð kappans og þeim erfiðleikum sem hann virðist glíma við, segir í frétt golf.com.

Hér er myndskeið frá Sky.