Þúsundir gesta kaupa fyrir milljónir í verslunarþorpinu á OPNA mótinu
Tjaldaþorpið eða tented village á OPNA mótinu á Royal Birkdale í Englandi er vinsæll áfangastaður kylfinga sem sækja þetta elsta risamót heims. „Þorpið“ er jafnan veglegt og í þorpinu eru margir aðilar að bjóða vöru og þjónustu á hverju móti. Líklega væri nafnið „Verslunarþorpið“ meira réttnefni.
Kollegar okkar á Today’s Golfers tóku hring inni í einu tjaldinu þar sem sjá má margar fallegar og flottar vörur, fatnað, minjagripi og fleira.
Hundruð þúsunda munu ganga þarna í gegn og kaupa varning fyrir milljónir punda.



