Þarft ekki alltaf að spila þitt besta golf til að sigra
„Þú þarft ekki alltaf að spila þitt besta golf til að sigra á golfmóti. Það er mikilvægt að meðtaka og sætta sig við og halda áfram, sama hvað gerist,“ sagði Bandaríkjamaðurinn J.J. Spaun, en hann sigraði á Valero Texas mótinu á PGA mótaröðinni um liðna helgi.
J.J. Spaun var nær óþekktur kylfingur á mótaröðinni þangað til hann sigraði á Opna bandaríska mótinu í fyrra. Hann hefur ekki leikið vel það sem af er nýju golfári en stundum smella hlutirnir bara.
Spaun sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á þessum velli, Oaks vellinum í San Antonio í Texas árið 2022 og hann sagði að það hafi komið sér vel núna.
Skotinn Robert Mcintyre hafði möguleika í síðasta holli að ná Spaun en þurfti að fá fugl á lokaholuna sem honum tókst ekki.
M. Kim endaði jafn í 2. sæti með Skotanum sem og Englendingurinn Matt Wallace sem var með forystu í klúbbhúsi þangað til Spaun kláraði höggi betri en þeir áttu báðir nánast eins vipp inn á lokaflötina.
Framundan er eitti stærsta og skemmtilegast mót ársins, Masters 2026.


