Þær íslensku ofarlega í Manchester
Íslensku golfkonurnar á LETAS mótaröðinni í Evrópu halda áfram að standa sig vel. Þær Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru nú við leik í Manchester og eftir fyrsta daginn eru þær allar undir pari og ofarlega í mótinu.
Ragnhildur er á þremur undir pari og lék á 69 höggum. Hún fékk sex fugla og tvo skolla og er jöfn í 8. sæti eftir fyrsta keppnisdag.
Hulda og Andrea eru báðar á höggi undir pari, 71 höggi. Skorkortið hjá Huldu var nokkuð „eðlilegt“ en það var mjög fjölbreytt hjá Andreu. Hún byrjaði hringinn með miklum látum, var fjóra undir pari eftir fimm holur, með tvo fugla og einn örn. Þá fékk hún tvöfalt par, 8 högg á par 4 holu á 7. braut. Það sem eftir lifði hrings fékk hún þrjá fugla til viðbótar en líka þrjá skolla. Verulega skrautlegt skorkort.


