Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Taugarnar þandar á Players mótinu - Young bestur á lokakaflanum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 16. mars 2026 kl. 14:27

Taugarnar þandar á Players mótinu - Young bestur á lokakaflanum

Lokakaflinn á Players mótinu sem lauk í gær á hinum fræga Sawgrass golfvelli í Jacksonville í Bandaríkjunum, oft nefnt fimmta risamótið í golfi, - var æsispennandi. Svo fór að Bandaríkmaðurinn Cameron Young tryggði sér sigurinn með mögnuðu golfi á tveimur síðustu brautunum en þær eru með þeim erfiðustu í golfi atvinnumanna. Þetta var stærsti sigur kappans á ferlinum og hann fór heim með 560 milljónir króna verðlaunafé.

Það var allt útlit fyrir evrópskan sigur því Evrópukylfingar voru áberandi í toppbaráttunni. Svíi, Skoti og Englendingur voru í efstu þremur sætunum um tíma á lokadeginum. En allt kom fyrir ekki. Svíinn Ludvig Åberg, sem var með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn fór á taugum á 11. og 12. holu þegar hann setti tvo bolta í sitt hvora vatnstorfæruna og tapaði bæði sveiflunni og forystunni.  Englendingurinn Matt Fitzpatrick tók forskotið í blálokin og leiddi með einu höggi þegar hann og Cameron Young komu á 17. teig. Báðir hittu flötina en Young nelgdi niður fyrir fugli og þeir stóðu jafnir á 18. teig. Þar átti Young að hans sögn, besta högg sem hann hefur slegið um ævina, drævið fór 340 metra og endaði á besta stað en Fitzpatrick sló út fyrir braut. Young kláraði á pari en Englendingurinn missti 2,5 metra pútt fyrir pari.

„Mér fannst ég standa mig ótrúlega vel í dag við það eitt að hanga inni í þessu,“ sagði Young. „Ég hef í raun ekki verið í þessari stöðu áður. Ég hef verið að elta. Ég hef upplifað að fólk spili á 65 höggum gegn mér. Mér fannst þetta í dag vera frábært andlegt próf á það hversu lengi maður getur hangið inni í baráttunni og séð hvað gerist.“

Stundum getur skeggið blekkt mann, en Young á langt í land með að teljast til „gömlu brýnanna“ á PGA-mótaröðinni, þrátt fyrir útlitið. Hann var tæplega 22 ára þegar hann lék á sínu fyrsta móti á mótaröðinni á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2019, og 25 ára þegar hann hafnaði í öðru sæti á Opna breska meistaramótinu á St. Andrews 2025 og í þriðja sæti á PGA-meistaramótinu sama ár. Uppgangurinn var hraður, þótt hann skilaði ekki titlum í hús, og það leiddi til þess sem Young lýsir sem „villtum og óeðlilega háum“ markmiðum snemma á ferlinum.

„Ég held að hann hafi barist við þetta síðan hann var fimm ára. Hann gerir stundum væntingar sem eru hreinlega fáránlegar,“ sagði Dave Young, faðir hans og sveifluþjálfari. „Hann sagði okkur þegar hann var 16 ára, þegar tilkynnt var um staðsetninguna, að hann ætlaði að spila í Ryder-bikarnum á Bethpage. Við sögðum bara: 'Já, gangi þér vel, krakki.' En þetta eru svona markmið sem hann setur sér.“

Þetta þýddi að á meðan Young klifraði upp metorðastigann í atvinnumennskunni, en þurfti að bíða allt þar til á Wyndham-meistaramótinu í fyrra eftir sínum fyrsta sigri á mótaröðinni, þurfti hann að standast þá freistingu að bera stöðu sína saman við það hvar hann taldi sig eiga að vera á þessum mikilvæga tímapunkti ferilsins.

„Ég er yfirleitt frekar harður við sjálfan mig,“ sagði Young. „Ég held að margir sem eru góðir í því sem þeir gera - geri miklar kröfur til sín. Þó að það sé kannski ekki alltaf það besta fyrir frammistöðuna á hæsta stigi, þá eru þessar væntingar líka það sem drífur mann áfram í að verða góður.“

Cameron og fjölskylda. Mynd/PGA of America.