Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Stelpurnar í ágætum málum í Svíþjóð
Hulda Gestsdóttir hefur byrjað vel á sínu fyrsta ári á LETAS mótaröðinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 2. júlí 2026 kl. 23:51

Stelpurnar í ágætum málum í Svíþjóð

Íslensku stelpurnar þrjár á LETAS mótaröðinni í Evrópu, þær Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru í ágætum málum fyrir lokadaginn á Swedish Strokeplay mótinu á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð.

Hulda Gestsdóttir, sem sigraði á sínu fyrsta móti á LETAS mótaröðinni er jöfn í 15. sæti  á höggi undir pari (74-71).

Ragnhildur Kristinsdóttir er höggi á eftir, á pari, og er jöfn í 17. sæti (74-72).

Andrea Bergsdóttir er á +2 (77-71) og er jöfn í 30. sæti.

Rigning og þrumuveður var í um klukkustund í Uppsala í dag og þurfti að stöðva leik á meðan. Sumar notuðu þó tímann til að æfa púttin.