Stal sigrinum með fimm fuglum á síðustu sex holunum
Það var mikil dramatík í lokin á mest sótta golfmóti ársins á PGA mótröðinni um helgina. Sigurvegarinn, Bandaríkjamaðurinn Cris Gutterup lék síðustu sex holurnar á fimm undir pari og jafnaði við Japanann Hideki Matsuyama og vann hann svo í bráðabana.
Matsuyama var með högg í forskot fyrir lokahringinn og var í þeirri stöðu þegar hann stóð á 18. teig. Upphafshöggið á lokabrautinni var hins vegar slakt og endaði í glompu sem kostaði hann högg. Matsuyama og Gutterup enduðu báðir á 16 undir pari og fór í bráðabana. Þar klikkaði dræverinn aftur hjá Japananum og boltinn endaði í vatnstorfæru vinstra meginn á brautinni. Gotterup gerði sér lítið fyrir og sló tvö flott högg og fékk fugl og tryggði sér sigur með frábærum lokaspretti.
Besti kylfingur heims, Scottie Scheffler byrjaði mótið mjög illa en vann sig inn í toppbaráttuna og var aðeins höggi frá tveimur efstu í lokin. Han deildi þriða sætinu með fjórum öðrum.
Að venju var fjör á 16. brautinni en þar safnast saman áhorfendur á pöllum sem umkringja brautina. Þar flýtur bjórinn í lítravís og fjörið því oft í stíl við það.

