Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Snókoma og hagél í Mekka golfsins í júní
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 12. júní 2026 kl. 20:23

Snókoma og hagél í Mekka golfsins í júní

Það gerist ýmislegt í veðrinu á Íslandi en líka í Skotlandi. Nú í vikunni brast á með óveðri sem gekk yfir Skotland, þar á meðal St. Andrews golfsvæðið, Mekka golfs í heiminum.

Þar urðu grænar grundir hvítar á örskotsbragði og kylfingar urðu að bíða í smá stund á meðan hagélin bráðnuðu á golfgrundum. Það er stundum sagt að fjórar árstíðir séu í Skotlandi - er það ekki svipað og á Íslandi?

En fyrir þá sem vilja einstaka golfupplifun eiga að fara til St. Andrews - það er ekkert sem jafnast á við það.