Slæm byrjun hjá okkar konum í Englandi
Íslensku golfkonurnar á LETas mótaröðinni í Evrópu, þær Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir byrjuðu illa í fyrsta hring á móti vikunnar sem fram fer á Hanbury Manor golfvellinum í Englandi.
Hulda og Ragga eru á þremur yfir pari og Andrea á fimm yfir en þær hafa allar verið í góðum gír í undanförnum mótum.
Hringurinn hjá Huldu var sérstakur. Hún byrjaði vel og var tvo undir eftir sjö holur og með efstu keppendum. Þá gerðist hið ótrúlega, hún fékk tvo þrefalda skolla í röð, á 8. og 9. holu. Það er ábyggilega ár og dagar síðan hún hefur gert það. Hún lagaði aðeins stöðuna á seinni níu með tveimur fuglum og einum skolla en 75 högg hjá henni.
Ragga var með fugl á 2. holu en restina lék hún á fjórum yfir pari.
Skorkortið hjá Andreu var litskrúðugt. Hún fékk þrjá tvöfalda skolla, þrjá skolla og tvo fugla og 79 högg.
Þær þurfa allar að ná góðum hring á morgun til að komast í gegnum niðurskurðinn.
Hulda er í 4. sæti á stigalistanum, Ragga í 8. sæti og Andrea er í 24. sæti.



