Skrautlegt skorkort í strembinni viku hjá Haraldi
Það var strembin vika hjá Haraldi Franklín en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Le Vaudreuil Golf Challenge mótinu í Frakklandi en í upphafi vikunnar lék hann á lokaúrtökumóti fyrir OPNA mótinu, The Open.
Haraldur fór þaðan eftir 36 holur á þriðjudag og hóf leik í Frakklandi á fimmtudagsmorguninn.
Hann lék hringina tvo á fimm yfir pari, 74-75 og skorkortið er mjög skrautlegt. Þar má sjá þrjá tvöfalda skolla, sex skolla, sex fugla og auk para.
Haraldur hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit á mótaröðinni í ár og er í 171. sæti á stigalistanum.


