Selfyssingar góðir á Íslandsmótinu - Hlynur vill fá Íslandsmótið 2032
Golfklúbbur Selfoss átti flotta fulltrúa á Íslandsmótinu í golfi. Aron Emil Gunnarsson var í lokaráshópi á síðasta keppnisdegi í þriðja sinn á síðustu fjórum árum og endaði í 2. sæti. Hlynur Geir Hjartarson, afrekskylfingur og framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss varð í 31. sæti, lék á sínu 28. móti í röð, og hefur alltaf komist í gegnum niðurskurðinn. Hann er með stóra drauma og vill fá Íslandsmótið á Svarfhólsvöll á Selfossi á næstu árum.
Hlynur var ánægður með frammistöðu sína, æfingalaus en hann sagði eftir mótið í pistli á Facebooksíðu sinni: „Fyrir mörgum árum var ég nógu þrjóskur til að lofa sjálfum mér að spila Íslandsmótið á hverju ári þar til ég yrði 50 ára. 28 Íslandsmót í röð og aldrei misst köttið. Það markmið er komið í hús og ég verð að viðurkenna að ég er pínu stoltur af því. 31. sæti í ár, gjörsamlega æfingalaus og með allt of lítið golf í skrokknum. Ég er bara mjög sáttur við það.
Það skemmtilega er að síðast þegar Íslandsmótið var í Korpunni, árið 2013, var ég í fullri æfingu og endaði í 32. sæti. Núna, 13 árum eldri og nánast ekkert æft: 31. sæti. Kannski er best að æfa bara sem minnst, - djók!,“ segir Hlynur og bætir því við að það sé gaman að sjá hvernig íslenskt golf hafi þróast en hann er líka með skemmtilegan draum og markmið í augnsýn.
Við STEFNUM á að halda Íslandsmótið í golfi á Selfossi árið 2032 eða um það bil. Það væri ansi skemmtilegt að loka hringnum þannig eftir öll þessi ár sem keppandi á Íslandsmótinu, að fá einn daginn að taka á móti bestu kylfingum landsins á okkar eigin velli á Selfossi.“
Mikil vinna hefur átt sér stað á Svarfhólsvelli á Selfossi sem nú er 14 holur. Fimm holur til viðbótar eru í vinnslu og stutt er í að hann verði 18 holur. Mikil ánægja hefur verið með vinnuna hjá Hlyni sem er framkvæmdastjóri klúbbsins, og félögum í GOS. Nýjar brautir hafa litið dagsins ljós en klúbburinn þurfti að gefa eftir land með golfbrautum vegna nýrrar Ölfusárbrúar sem er í byggingu og fékk í staðinn stærra land undir nýjar brautir. Þá gerði GOS nýlega góðan samning við sveitarfélagið um stuðning.
Á nýjum brautunum sem þegar eru komnar kemur áin sterkara og mjög skemmtilega inn í völlinn. Ein af nýjum brautum sem á eftir að taka í notkun verður rúmlega 600 metra löng par 5 hola sem verður ein sú lengsta ef ekki sú lengsta á Íslandi.

Aron Emil við leik á Íslandsmótinu á Korpu.

Hér má sjá eina af nýju holum á Svarfhólsvelli á Selfossi.




