Dagbjartur Íslandsmeistari annað árið í röð
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er Íslandsmeistari í golfi annað árið í röð. Hann leiddi frá fyrsta degi og var öryggið uppmálað alla leið og tryggði sér titlinn á heimavelli, Korpúlsstaðavelli í Reykjavík.
Dagbjartur lék lokahringinn á pari og tíu undir í heildina og vann með fjögurra högga mun.
Aron Emil Gunnarsson Golfklúbbi Selfoss var sá eini sem gat ógnað Dagbjarti. Aron lék mjög gott golf og náði að minnka muninn í fjögur höggen en nær komst hann ekki. Selfyssingurinn endaði á fimm undir pari og varð í 2. sæti.
Þriðji varð Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar á þremur undir pari. Fjórði varð Tómas Eiríksson Hjaltested á tveimur undir pari.
Hjalti Kristján Hjaltason úr GR og Kristófer Orri Þórðarson deila fimmta sætinu á höggi yfir pari.


