Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory fór lengri leiðina að öðrum Grænum jakka - magnaður sigur á Masters
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 12. apríl 2026 kl. 23:26

Rory fór lengri leiðina að öðrum Grænum jakka - magnaður sigur á Masters

N-Írinn Rory Mcilroy fór lengri leiðina að titilvörninni á Masters í ár en þrátt fyrir að hafa misst niður stórt forskot og detta síðan úr forskoti eftir sex holur á lokahring tókst honum að koma til baka og vinna græna jakkann annað árið í röð. Síðustu sextíu árin hafa aðeins þrír kylfingar varið titilinn á Masters.

Rory var með sex högga forskot eftir 36 holur en tapaði því á þriðja hring og var jafn í forystu þegar fjórði hringurinn hófst. Hann var á pari eftir fimm holur en fékk tvöfaldan skolla á 4. holu og skolla á 6. holu og var dottinn út úr forystunni. Justin Rose náði tveggja högga forskoti en tapaði því á tveimur holum og gerði fátíð mistök á seinni hringnum sem kostuðu hann græna jakkann, endaði þó í 3. sæti.

Rory svaraði strax með tveimur fuglum í röð og gerði engin mistök á næstu ellefu brautum. Þegar hann stóð á 18. teig var forskot hans tvö högg en næsti maður var enginn annar en efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler. Rory, sem hafði náð að stilla dræverinn aftur hitti slakt upphafshögg á lokabrautinni en náði að klára á skolla, og mótið með einu höggi.

„Ég hugsaði með mér eftir mistökin á sjöttu að ég þyrfti að koma mér aftur á parið og setti mér markmið að ná 14 undir pari. Það myndi duga. Ég náði að vera 13 undir þegar ég stóð á 18. teig og það var þægilegt að vita að ég ætti tvö högg. Ég fylgdist vel með skortöflunni í allan dag. Fannst ég þurfa það. Fulgar á 12. og 13. holu voru mikilvægir á seinni hringnum og bjuggu til forskot sem ég náði að halda. Þetta er mögnuð tilfinning að vinna jakkann aftur,“ sagði Rory þegar hann var klæddur í græna jakkann í Butler setustofunni á Augusta National. Sigur hans var magnaður. Hann hélt haus þó á hann reyndi og sýndi úr hverju hann er gerður.

Lokastaðan.