Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory byrjar titilvörnina vel á Masters
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 23:26

Rory byrjar titilvörnina vel á Masters

Rory Mcilroy hóf titilvörnina mjög vel á Masters og lék flott golf í fyrsta hringnum á fimm höggum undir pari, 67 höggum. Það gerði líka Sam Burns en þeir eru tveimur höggum betri en næstu kylfingar. 

Rory fékk sex fugla og einn skolla og lenti afar sjaldan í vandræðum.

Bandaríkjamaðurinn Sam Burns fék fjóra fugla, einn örn og einn skolla.

Næstu menn eru á -3 en það eru þeir Kurt Kitayama (USA), Ástralinn Jason Day og Bandaríkjamaðurinn Jason Day. Meðal keppenda á -2 eru Scottie Scheffler, Justin Rose, Xander Schauffele og Shane Lowry.

Nokkrir af þeim sem spáð var velgengni fundu ekki fjölina í dag, m.a. þeir Bryson Dechambeau (+4) og Jon Rahm (+6).

Aðstæður voru mjög góðar og veðrið gott en flatir voru hraðar og skorið hækkaði þegar leið á daginn.