Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rögnvaldur og Auður meistarar í Oddi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 12. júlí 2026 kl. 20:03

Rögnvaldur og Auður meistarar í Oddi

Rögnvaldur Magnússon og Auður Björt Skúladóttir urðu klúbbmeistarar Odds 2026. Góð þátttaka var í meistaramótinu og stemmningin góð.

Rögnvaldur lék á +26 (73-82-81-74) og endaði þremur höggum á undan Axel Óla Sigurjónssyni sem var á +29 (78-78-73-84) sem var með forystu fyrir lokadaginn. Þriðji varð Skúli Ágúst Arnarson á +33 en hann var með forystu eftir tvo daga. Sviptingar voru miklar í meistaraflokki karla í mótinu.

Auður Björt lék á 326 höggum (78-84-84-80) og var sjö höggum á undan Heklu Ingunni Daðadóttur sem lék á 333 höggum (87-75-81-90). Þriðja varð Berglind Rut Hilmarsdóttir á 337 höggum (81-87-84-85).