Reed vann í annað sinn í þremur mótum
Bandaríkjamaðurin Patrick Reed sem hætti á LIV mótaröðinni um áramótin og hefur tekið þátt í fyrstu þremur mótum ný hafins árs á DP mótaröðinni, sigraði í annað sinn í þremur mótum, nú á Qatar Masters um síðustu helgi.
Reed vann fyrir þremur vikum, varð annar á móti vikuna þar á eftir og hefur verið sjóðheitur eftir brottför frá LIV mótaröðinni.
Fimmfaldur sigurvegari á DP World mótaröðinni lék lokahringinn á 70 höggum, eða tveimur höggum undir pari, og lauk keppni á samtals 16 höggum undir pari, tveimur höggum á undan Skotanum Calum Hill sem lenti í öðru sæti annað mótið í röð.
Reed hafði tveggja högga forystu á Jacob Skov Olesen fyrir lokahringinn, en eftir að Daninn fékk fugl á fyrstu holu og Reed skolla á annarri voru þeir jafnir í efsta sæti.
Fleiri blönduðu sér í titlbaráttuna en Reed lék stöðugt golf. Hann fékk fugl á 14. holu og lék svo á pari það sem eftir var til að tryggja sér fimmta sigur sinn á DP World Tour og komast í efsta sæti á Race to Dubai stigalistanum.
Olesen og Bandaríkjamaðurinn Johannes Veerman deildu þriðja sætinu, en Lindell og Dan Bradbury deildu fimmta sætinu með Angel Ayora og Sebastian Söderberg á 12 höggum undir pari.
Þrefaldi risamótsmeistarinn Pádraig Harrington, sem keppti á sínu 500. móti á DP World Tour, lék undir pari fjórða daginn í röð á 71 höggi og lauk keppni á fimm höggum undir pari.


